Sjúkraflutningamenn voru kallaðir út til að aðstoða slasaða konu í hlíðum Reykjafells í Skammadal í Mosfellssveit. Konan er líklega ökklabrotin.
Mikil bleyta og drulla er á svæðinu og þurftu sjúkraflutningamenn að bera hana nokkra vegalengd til að koma henni inn í sjúkrabílinn.