Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er nú á leið til Arkhangelsk í Rússlandi þar sem hann tekur þátt í pallborðsumræðum á ráðstefnunni The Arctic: Territory of Dialogue ásamt Sauli Niinisto, forseta Finnlands, og Vladimír Pútín, forseta Rússlands.
Ráðstefnan hefst á morgun, en á fimmtudag mun Guðni, ásamt öðrum þjóðarleiðtogum sem ráðstefnuna sækja flytja erindi. Guðni mun síðan að pallborðsumræðum loknum eiga fund með Pútín.