Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði för átta ökumanna í gærkvöldi og í nótt sem reyndust undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Einhverjir þeirra voru með fíkniefni á sér og nokkrir voru án ökuréttinda.
Klukkan 22:30 var bifreið stöðvuð á Kringlumýrarbraut. Ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna.
Klukkan 23:10 var bifreið stöðvuð á Hafnarfjarðarvegi. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur og að aka sviptur ökuréttindum.
Klukkan 23:45 var bifreið stöðvuð við Herjólfsbraut. Ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og vörslu fíkniefna.
Klukkan 00:01 var bifreið stöðvuð við Suðurfell. Ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og að aka sviptur ökuréttindum (ítrekað brot).
Klukkan 01:15 var bifreið stöðvuð við Staðarberg. Ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og vörslu fíkniefna.
Klukkan 01:25 var bifreið stöðvuð á Grensásvegi. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur. Bifreiðin reyndist ótryggð og voru skráningarmerki klippt af.
Klukkan 01:58 var bifreið stöðvuð á Reykjavíkurvegi. Ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og vörslu/sölu fíkniefna.
Klukkan 03:30 var bifreið stöðvuð við Litlatún. Ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna.