Vegir eru greiðfærir á Suðurlandi en á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir á nokkrum fjallvegum og krapi á Fróðárheiði.
Á Vestfjörðum eru sumstaðar hálkublettir á heiðum og hálsum en greiðfært að mestu á láglendi. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Hálfdán og þungfært er á Steingrímsfjarðarheiði eftir nóttina. Hálka er á Hrafnseyrarheiði en Dynjandisheiði er enn ófær. Snjóþekja er norður í Árneshrepp.
Vegir á Norðurlandi eru víðast auðir en þó eru hálkublettir á nokkrum fjallvegum og snjóþekja á Dettifossvegi.
Greiðfært er að mestu á Austur- og Suðausturlandi en hálkublettir eru á Háreksstaðaleið og Fjarðarheiði, segir á vef Vegagerðarinnar.