Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, hefur lagt fram fyrirspurn til heilbrigðisráðherra um kaup á nýjum krabbameinslyfjum. Þar spyr hún hvort fyrirheit ríkisstjórnarinnar frá því í febrúar hafi verið efnd um að fé yrði veitt til kaupa á nýjum krabbameinslyfjum.
Einnig spyr hún hve miklu fé verður varið til kaupa á nýjum krabbameinslyfjum á þessu ári.
Sömuleiðis óskar hún eftir svörum við því hve margir sjúklingar munu eiga þess kost að fá ný krabbameinslyf og hvenær þau verða tiltæk.