Vann tvær milljónir króna

Tveir lottóspilarar unnu tæplega 320 þúsund krónur í lottói kvöldsins en aðalvinningurinn upp á rúmar 14,5 milljónir króna gekk ekki út að þessu sinni. Annar vinningsmiðinn var keyptur í áskrift en hinn á Akureyri. Vinningshafarnir voru með fjórar tölur réttar auk bónustölunnar.

Hins vegar vann einn lóttóspilari tvær milljónir króna þar sem hann var með fimm rétta í Jókernum. Lottótölurnar voru 8, 23, 24, 30 og 39 og bónustalan var 3. Jókertölurnar voru 7, 7, 1, 0 og 1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert