Harma „yfirtöku“ Tækniskólans á FÁ

Tækniskólinn.
Tækniskólinn. Af vef Tækniskólans

Félag framhaldsskólakennara tekur skýra afstöðu gegn fyrirhugaðri sameiningu Tækniskólans og Fjölbrautaskólans við Ármúla. Í tilkynningu frá félaginu segir að rekstrarform og áherslur skólanna séu ólíkar og að það sé áhyggjuefni ef einkavæða eigi menntakerfið, einn skóla í einu.

Segir í tilkynningunni að á Íslandi hafi verið sú stefna að allir hafi jöfn tækifæri til náms og að menntun sé hluti af velferðarkerfinu, en ekki vettvangur markaðsvæðingar. „. Ástæða þess að framhaldsskólar eru opinberar stofnanir er sú að hlutverk þeirra er að stuðla að alhliða þroska allra nemenda og virkri þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi með því að bjóða hverjum nemanda nám við hæfi, óháð efnahag og félagslegri stöðu. Hætt er við að þessar hugmyndir fari forgörðum ef þær eru að fullu settar í hendur einkaaðila,“ segir félagið.

Í tilkynningunni eru vinnubrögð í kringum málið hörmuð og sagt að kalla megi aðgerðina „yfirtöku Tækniskólans á Fjölbrautaskólanum við Ármúla.“ Segir þá að fjöldi nemenda og starfsfólks bíði nú í óvissu um framtíð sína. „Félag framhaldsskólakennara kallar eftir skýrri aðgerðaáætlun og rökstuðningi fyrir þessari ákvörðun með tilliti til rekstrarlegra og faglegra sjónarmiða.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert