Gjaldfrjáls námsgögn verða í grunnskólum Reykjanesbæjar frá og með næsta hausti. Á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar var samþykkt að veita grunnskólum fjárveitingu á næsta skólaári til kaupa á námsgögnum. Þetta kemur fram í tilkynningu.
„Gjaldfrjáls námsgögn styðja við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem Íslendingar hafa staðfest aðild sína að og Fjölskyldustefnu Reykjanesbæjar. Þetta skref er liður í því að vinna gegn mismunun barna og styður það að öll börn njóti jafnræðis í námi.“ Þetta kemur fram í fundargerð fræðsluráðs sem lagði til að Reykjanesbær myndi veita öllum börnum í grunnskólum Reykjanesbæjar nauðsynleg námsgögn frá og með næsta hausti.
Fjórir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni og einn gegn henni.