Lögreglan leitar að ábyrgðarmanni

Auglýst er eftir sökudólginum á Facebook síðu lögrelgunnar.
Auglýst er eftir sökudólginum á Facebook síðu lögrelgunnar. Ljósmynd/Facebook Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

Lögreglan á Suðurnesjum auglýsir nú á Facebook-síðu sinni eftir þeim sem ábyrgð ber á veðurfarinu þessa dagana. Fundarlaunin eru pylsa og kók og má vera ljóst af tilkynningunni að það eru ekki bara almennir borgara sem eru búnir að fá nóg af hvassviðrinu.  

Í færslunni, sem birt var nú í morgun, er sett upp auglýsing í klassískum vestra stíl.  „Sá sem er ábyrgur fyrir þessu veðri óskast handtekinn,“ segir í færslunni sem er í léttu nótunum.

„Sá sem finnur þann sem er ábyrgur fyrir þessu veðri skal færa kauða til lögreglunnar í flugstöð Leifs-Eiríkssonar sem sér um að koma þessum aðila úr landi ekki seinna en strax.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert