Þjóðskrá Íslands mun á næstu vikum gefa út svokölluð neyðarvegabréf fyrir þá umsækjendur nýrra vegabréfa sem hyggjast ferðast í Evrópu. Almenn vegabréf verða áfram gefin út fyrir umsækjendur sem ferðast utan Evrópu.
Þessar ráðstafanir koma til framkvæmda í dag 12. maí og gilda til fram í júní. Þær eru nauðsynlegar vegna tafa á afhendingu vegabréfabóka frá framleiðanda þeirra í Kanada sem hann segir stafa af bruna í verksmiðju og skorti á öryggispappír til framleiðslunnar, segir í tilkynningu frá Þjóðskrá Íslands.
„Lager vegabréfabóka í landinu dugar ekki til að gefa út almenn vegabréf handa öllum umsækjendum. Við því er nú brugðist á þennan hátt til að tryggja að allir umsækjendur fái ferðaskilríki, komist ferða sinna og verði fyrir sem minnstum óþægindum.
Neyðarvegabréf eru talin fullgild ferðaskilríki í Evrópu en þykja ekki nægilega örugg utan Evrópu, meðal annars vegna þess að þau eru ekki lesanleg rafrænt.
Nauðsynlegt að fá upplýsingar frá umsækjendum
Þessar sérstöku aðstæður kalla á að Þjóðskrá Íslands fái upplýsingar um dagsetningar ferða og áfangastaði frá þeim sem hafa sótt um eða hyggjast sækja um vegabréf fyrir 10. júní. Það gerist með því að viðkomandi fyllir út eyðublað hér. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu geta hringt í þjónustuver í síma 515 5300.
Vegabréfaumsóknirnar verða síðan afgreiddar á eftirfarandi hátt:
Gert var ráð fyrir því að hingað til lands bærust 30 þúsund vegabréfabækur frá Kanada í byrjun maímánaðar en það gerðist ekki. Miðvikudaginn 10. maí barst Þjóðskrá Íslands tilkynning um að bækurnar yrðu ekki afhentar fyrr en í byrjun júní og þá voru skipulögð viðbrögð í samræmi við viðbragðsáætlun stofnunarinnar.