Mikill hiti í Vestmannaeyjum

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. mbl.is/Árni Sæberg

„Það er mikill hiti í Vestmannaeyjum yfir þeim samgöngum sem þar eru í boði núna meðan Herjólfur er í slipp. Það er auðvitað rannsóknarefni hverjum datt í hug að fá litla ferju, sem er með einni vél og litla flutningsgetu, til að sigla milli lands og Eyja.“

Þetta sagði Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag í umræðum um störf þingsins þar sem hann gerði samgöngumál á milli Vestmannaeyja og lands að umtalsefni. Vísaði hann til þeirrar ákvörðunar að nota Breiðafjarðarferjuna Baldur í stað Herjólfs.

„Það þarf auðvitað að skoða hverjum dettur slíkt í hug, að bjóða 5.000 manna samfélagi, stærstu verstöð landsins, upp á slíkar samgöngur sem hafa verið með þeim eindæmum síðustu vikur að þær hafa verið nánast engar. Það hlýtur að vera krafa Eyjamanna til okkar á hinu háa Alþingi að við kippum þeim málefnum í lag og að þetta komi ekki fyrir aftur þegar Herjólfur fer í slipp.“

Þingmaðurinn sagði ríkja kröfu í Vestmannaeyjum, sem komið hefði fram á fjölmennum íbúafundi þar í síðustu viku að þegar siglt væri í Landeyjahöfn skyldu ávallt vera sex ferðir á dag að lágmarki og að þegar yrðu hafnar rannsóknir á höfninni með það að markmiði að bæta innsiglingu hennar þannig að hægt yrði að nota hana sem heilsárshöfn.

Sömuleiðis að fargjöld til Þorlákshafnar yrðu þau sömu og til Landeyjahafnar og að rekstur ferjunnar yrði í höndum heimamanna og hagnaður af honum nýttur til að lækka fargjöld og auka þjónustuna. „Við þurfum að hlusta á Vestmannaeyinga og þær sanngjörnu kröfur sem þeir setja upp í samgöngumálum.“

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert