Hljóðmælar settir upp við flugvöllinn

Keflavíkurflugvöllur.
Keflavíkurflugvöllur. ljósmynd/Isavia

Nýtt hljóðmælingakerfi verður opnað á vef Isavia í byrjun júní. Kerfið sýnir flugumferð og hljóðvist í rauntíma og hefur til að mynda reynst afar vel á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn og öðrum flugvöllum. Þetta var meðal þess sem kom fram á opnum íbúafundi sem Isavia hélt fyrir íbúa á nærsvæði Keflavíkurflugvallar á miðvikudaginn sl. 

Á fundinum voru kynnt áhrif framkvæmda við flugbrautir á flugumferð og hljóðvist. Einnig voru kynntar niðurstöður hljóðmælinga á svæðinu sem og nýja hljóðmælingakerfið, en settir hafa verið upp þrír mælar sem mæla hljóðvist einstakra flugvéla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.

Haft er eftir Þresti Söring, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Keflavíkurflugvallar, að framkvæmdir á flugbrautakerfi flugvallarins hafi vissulega áhrif á flugumferð, þá sérstaklega í sumar þegar álagið er sem mest. Nú standi yfir framkvæmdir á vellinum en áætlað sé að þeim ljúki í haust. Er um að ræða stærstu framkvæmdir á flugbrautunum í áratugi.

Nýtt hljóðmælingakerfi var kynnt á fundinum.
Nýtt hljóðmælingakerfi var kynnt á fundinum. ljósmynd/Isavia

Þrír mælar sem mæla hljóðvist flugvéla

Þá sagði Valur Klemensson, deildarstjóri umhverfisdeildar Keflavíkurflugvallar, frá hljóðmælingakerfinu, en það kemur frá danska fyrirtækinu Brüel & Kjær. Isavia hafi lagt mikla áherslu á aukna hljóðstigsvöktun í kjölfar aukinnar flugumferðar um svæðið. „Við höfum sett upp þrjá mæla við jaðar byggðarinnar í kringum flugvöllinn sem mæla hljóðvist einstakra flugvéla í rauntíma. Íbúar geta fylgst með þessum mælingum á vefnum og gefst tækifæri til að koma á framfæri athugasemdum varðandi einstaka flugvélar í gegnum nýja kerfið. Með þessu móti hafa íbúar í höndunum meiri upplýsingar um umferðina og flugferlana sem flognir eru og geta því sent ítarlegri athugasemdir varðandi hljóðmengun af flugumferð. Að sama skapi verður auðveldara fyrir Isavia að vinna úr athugasemdunum og komast þær í fastara ferli. Auk hljóðmælinganna mun Isavia einnig hefja loftgæðamælingar þar sem áhersla verður lögð á að kanna útblástur nituroxíða frá flugumferð yfir byggð í grennd við flugvöllinn.“

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia og Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar ávörpuðu einnig fundinn og í lok hans gafst íbúum tækifæri til að spyrja frummælendur spurninga. Bárust margar spurningar úr sal og höfðu íbúar áhyggjur af hljóðmengun vegna aukinnar flugumferðar um völlinn. Fram kom að hljóðmælingarnar verði notaðar til þess að prófa og móta nýja flugferla í samstarfi við flugfélögin sem nota Keflavíkurflugvöll og þannig verði stefnt að því að minnka hljóðmengun í byggð eins og kostur er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka