Lýst eftir Christian Andres

Cristian Andres er 17 ára gamall.
Cristian Andres er 17 ára gamall. Ljósmynd/Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Cristian Andres, fæddum árið 2000. Hann er lágvaxinn og grannur. Síðast þegar sást til hans var hann í svartri 66°Norður-úlpu, með hettu og loðkraga og með svarta húfu.

Hann hefur haldið sig mikið til í Efra-Breiðholti, Mosfellsbæ og í miðborg Reykjavíkur, að því er fram kemur í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar.

Ef þið hafið upplýsingar um hvar hann hefur haldið sig eða með hverjum þá vinsamlegast hringið í 444-1000 en ef þið vitið hvar hann er núna hringið þá í 112.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert