Tveir stórir jarðskjálftar urðu í Bárðarbungu í kvöld, nánar tiltekið í norðanverðri Bárðarbunguöskjunni.
Sá fyrri mældist kl. 20:33 og var af stærð 3,8, en sá seinni um tveimur og hálfri mínútu síðar var 3,9 að stærð.
Um tíu eftirskjálftar fylgdu, sá stærsti kl. 21:16 um 3,2 að stærð, að því er segir á vef Veðurstofu Íslands.