Fjórir hlutu Vorvinda IBBY

Pamela De Sensi, listrænn stjórnandi Töfrahurðar, Sigyn Blöndal og Sindri …
Pamela De Sensi, listrænn stjórnandi Töfrahurðar, Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson frá KrakkaRÚV, Jenný Kolsöe og Lára Garðarsdóttir. Aðsend mynd

Íslandsdeild IBBY veitti í dag sínar árlegu viðurkenningar fyrir framlög til barnamenningar, Vorvinda, við athöfn í Gunnarshúsi, húsi Rithöfundasambands Íslands.

Samkvæmt fréttatilkynningu er Vorvindum er ætlað að vekja athygli á verkum og starfsemi sem hleypir ferskum og endurnærandi vindum inn í íslenska barnamenningu. Að þessu sinni voru Vorvindahafarnir fjórir.

Lára Garðarsdóttir, mynd- og rithöfundur, fékk viðurkenningu fyrir bók sína Flökkusögu, en hún greinir frá hættuför lítillar hvítabirnu sem verður að flýja heimkynni sín og leita að nýju heimili. KrakkaRÚV hlaut Vorvinda fyrir starf sitt við framleiðslu efnis fyrir börn og með börnum, einkum fréttaefnis fyrir börn, og fyrir að gera eldra efni aðgengilegt. Jenny Kolsöe rithöfundur hlaut viðurkenningu fyrir bækurnar um ömmu óþekku og afa sterka, sem flétta fræðslu um landið okkar og þjóðsögurnar inn í fyndna samtímafrásögn. Loks var Töfrahurð tónlistarútgáfa verðlaunuð fyrir að opna börnum gátt inn í heim tónlistar með fjölbreyttu og metnaðarfullu útgáfustarfi og tónleikahaldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert