Upplestraruppákoma Andrésar Andar og Eymundsson fór fram í dag í verslun Eymundssonar í Kringlunni. Markmið uppákomunnar var að hvetja krakka til lesturs og gefa þeim tækifæri til að lesa upphátt með leiktilþrifum og taka þannig þátt í jákvæðu, skemmtilegu verkefni sem allir ættu að geta ráðið við og haft gaman af. Hægt er að horfa á upptöku hér fyrir neðan.