Ölvaður skipstjóri sigldi í höfn

Lögreglan tekur nú við rannsókn málsins.
Lögreglan tekur nú við rannsókn málsins. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar höfðu afskipti af rússneskum togara í nótt vegna gruns um ölvun skipstjóra skipsins. Togarinn var á leið til Hafnarfjarðar í gærkvöldi og þegar skipstjóri skipsins hafði samband við Landhelgisgæsluna vegna hafnarkomunnar vaknaði grunur um að ekki væri allt með felldu um borð.

Eftirlitsbátur Landhelgisgæslunnar var sendur að togaranum og fóru tveir starfsmenn Landhelgisgæslunnar ásamt tveimur lögreglumönnum um borð í togarann til eftirlits. Við athugun kom í ljós að skipstjóri og yfirstýrimaður skipsins reyndust undir áhrifum áfengis. Skipið var fært til hafnar nú í morgun þar sem lögregla tekur við rannsókn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert