Vöruflutningadrónar munu fylgja næstu tæknibyltingu, að sögn Ólafs Andra Ragnarssonar, frumkvöðuls og aðjunkts í nýtækni og nýsköpun við HR.
„Það er verið að breyta reglugerðum um allan heim til að gera vöruflutningadrónum kleift að afhenda vörur heim til fólks. Hvert einasta heimili verður með lendingarpall í framtíðinni,“ segir Ólafur Andri í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.