Málningu skvett á bíla og bifhjól

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglunni á Suðurnesjum barst í gærkvöldi tilkynning þess efnis að búið væri að skvetta málningu á tvær bifreiðar og bifhjól í Vogunum. Þegar á vettvang var komið mátti sjá málningu víða á farartækjunum sem öll eru í eigu sama einstaklings. Lögregla rannsakar málið.

Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir ennfremur, að lögreglan hafi að undanförnu stöðvað sex ökumenn sem óku á negldum dekkjum í rigningunni. Brot af þessu tagi er dýrt spaug því greiða þarf fimm þúsund krónur í sekt fyrir hvert neglt dekk undir bílnum eftir 15. apríl, segir lögregla.

„Þá hefur lögreglan nú vakandi auga með útbúnaði eftirvagna svo sem hjól – og tjaldhýsa þar sem umferð þeirra fer vaxandi þessa dagana. Í ljós hefur komið að ýmsu getur verið ábótavant svo sem ljósabúnaði, framlengingu á hliðarspeglum og tengibúnaði. Í tveimur tilvikum voru ökumenn með kerrur í eftirdragi sem ekkert erindi áttu út á vegina þar sem önnur var óskráð en hin ónýt.

Þeim sem hyggja á ferðalög með eftirvagna er bent á að hafa alla öryggisþætti í lagi áður en lagt er af stað,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert