Hæstiréttur mildar nauðgunardóm

Hæstiréttur íslands.
Hæstiréttur íslands. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Hæstiréttur kemst að þeirri niðurstöðu að milda skuli fangelsisdóm yfir manni sem sakfelldur var í héraði fyrir að nauðga 16 ára stúlku á gistiheimili í Reykjavík.

Maðurinn hlaut þriggja ára fangelsisdóm í héraði í lok janúar en Hæstiréttur kemst að þeirri niðurstöðu að maðurinn skuli sæta tveggja ára óskilorðsbundnu fangelsi. Dómur héraðsdóms helst að öðru leyti óraskaður. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til aðdraganda brotsins og þess hve ungur maðurinn var að árum er brotið var framið.

Í dómi Hæstaréttar er vísað í úrskurð kærunefndar útlendingamála þar sem fram kemur að maðurinn hafi komið hingað til lands í byrjun janúar 2016 án þess að vera í fylgd forráðamanns og hafi því staðið höllum fæti félagslega. Þá hafi brotaþoli borið það fyrir dómi að hún og ákærði hafi tvívegis haft samfarir með samþykki hennar fyrr um kvöldið, áður en hann braut gegn henni á þann hátt sem greint er frá í ákæru. Maðurinn, sem sjálfur var 17 ára þegar brotið var framið, neitaði sök fyr­ir rétti.

Vildi ekki hafa samræði í þriðja skiptið

Brotið framdi maður­inn, sem hafði sótt um hæli á Íslandi en fengið synj­un, í mars í fyrra. Sam­kvæmt ákæru beitti hann stúlk­una ólög­mætri nauðung til þess að hafa við hana sam­ræði og önn­ur kyn­ferðismök en hann nuddaði kyn­færi henn­ar og lagðist síðan ofan á hana og hafði við hana sam­ræði, þrátt fyr­ir að hún hefði sagt hon­um að hún vildi það ekki og beðið hann um að hætta. 

Stúlk­an lagði fram form­lega kæru á hend­ur mann­in­um í byrj­un apríl 2016 en þar kom fram að hún hafi kynnst hon­um þegar hann spurði hana til veg­ar í stræt­is­vagni. Þau hafi skipst á síma­núm­er­um og í fram­haldi farið að tala sam­an á Face­book. Þau hafi nokkru síðar mælt sér mót og farið sam­an á gisti­heim­ili.

Í her­bergi á gisti­heim­il­inu umrætt kvöld hafi þau í tvígang haft sam­ræði. Stúlk­an hafi farið á snyrt­ing­una og er hún hafi komið til baka hafi hann viljað hafa sam­ræði við hana í þriðja skiptið. Það hafi hún ekki viljað og gert hon­um grein fyr­ir því. Þrátt fyr­ir það hafi hann nuddað kyn­færi henn­ar og þvingað hana til sam­ræðis. Við skýrslutöku hjá lögreglu og fyrir dómi breyttist frásögn mannsins ítrekað og var framburður hans ekki talinn trúverðugur.

Sem fyrr segir var maðurinn dæmdur í héraði til að sæta þriggja ára fangelsi. Þeim dómi var í febrúar áfríað til Hæstaréttar sem kemst að þeirri niðurstöðu að maðurinn skuli sæta tveggja ára fangelsi, óskilorðsbundið. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til aðdraganda brotsins og þess að maðurinn var tæplega 17 ára gamall þegar hann framdi brotið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert