Meðalrekstarkostnaður á hvern nemanda í öllum grunnskólum sem eru reknir af sveitarfélögum er áætlaður 1.810.487 krónur í júní 2017, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands.
Meðalrekstrarkostnaður á hvern nemanda í grunnskólum árið 2015 var 1.651.002 krónur og vegin meðalverðbreyting rekstrarkostnaðar frá 2015 til júní 2017 er áætluð 9,7%, að því er kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands.
Samkvæmt reglugerð skal útreikningur Hagstofu Íslands skv. 1. mgr. vegna komandi skólaárs liggja fyrir í september ár hvert.
Útreikningur skal byggður á ársreikningum sveitarfélaga fyrir liðið ár, að teknu tilliti til verðlagsbreytinga til þess dags sem útreikningur er gerður. Verðlagsbreytingar skulu taka mið af almennum launahækkunum starfsmanna grunnskóla og breytingum á vísitölu neysluverðs að teknu tilliti til vægis hvors þáttar fyrir sig í rekstrarkostnaði grunnskólanna.