Búið er að opna Ölfusárbrú aftur eftir að henni var lokað vegna björgunaraðgerða á brúnni fyrr í morgun. Bíll, sem veitt var eftirför úr Reykjavík, lenti í ánni og var ökumanninum bjargað af þaki bílsins. Hann var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur. Einnig er búið að ná bílnum úr ánni.
Lögreglan hafði sett upp vegatálma á Ölfusárbrú vegna eftirfararinnar, en ökumaðurinn ók út af veginum norðan megin við brúna út í ána. Bíllinn lenti á grynningum í ánni en barst með straumnum undir brúna.
Maðurinn var með meðvitund þegar hann kom á land, en hann komst af sjálfdáðum út úr bílnum og upp á þak bílsins, þaðan sem honum var bjargað.
Aðdragandinn var sá að sérsveit Ríkislögreglustjóra, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og lögreglan á Suðurlandi veittu ökutæki eftirför úr Reykjavík fyrr í morgun, en eftirförinni lauk við Ölfusá. Bílinn lenti í ánni og björgunarsveitir voru kallaðar til aðstoðar á vettvangi.
Samkvæmt heimildum mbl.is tóku að minnsta kosti sjö lögreglubílar, tvö lögreglumótorhjól og tveir sjúkrabílar þátt í aðgerðinni.