Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Borgarfirði voru kallaðar út á fimmta tímanum vegna slasaðrar konu við Barnafossa.
Fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörg að konan hafi dottið, hlotið áverka á fæti og ekki getað gengið. Nokkur fjarlægð hafi verið að bílastæði og töluvert klöngur.
Björgunarmenn hafi borið konuna að stæðinu þar sem hún var sett í sjúkrabíl og flutt á sjúkrahús.