Þriggja bíla árekstur varð í Ártúnsbrekkunni í Reykjavík um áttaleytið í kvöld samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Engin meiðsl urðu á fólki og því enginn fluttur á slysadeild. Dælubíll var hins vegar sendur á vattvang til þess að hreinsa eftir umferðaróhappið.
Nokkrar umferðartafir hafa orðið vegna þessa.