Brotist var inn í reiðhjólaverslun í Kópavogi í nótt og einhverjum verðmætum stolið, samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Upp úr klukkan fimm í morgun var maður handtekinn í miðborginni vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Voru ökuréttindi hans að auki útrunnin. Hann var fluttur á lögreglustöð til blóðsýna- og skýrslutöku og var hann frjáls ferða sinna að því loknu.