Íslendingar flykkjast út úr landinu

Flogið út.
Flogið út. mbl.is/Sigurður Bogi

Aðeins einu sinni áður hafa fleiri Íslendingar innritað sig í flug frá Keflavíkurflugvelli, frá því talningar hófust á ferðalögum til útlanda, en í júní síðastliðnum. Alls innrituðu sig 62.234 Íslendingar í flug héðan og yfir Atlantshafið.

Fjöldinn hefur aðeins einu sinni verið meiri, eins og áður sagði, en það var í júní á síðasta ári þegar Evrópukeppnin í knattspyrnu var í algleymingi.

Greint er frá þessu á vefnum turisti.is. Ferðametin sem sett voru á árunum fyrir hrun bankanna árið 2008 eru þar sögð vera að falla eitt af öðru.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert