Fjallabaksleið nyrðri lokuð vegna vatnavaxta

Tjaldstæðið í Landmannalaugum. Búið er að loka Fjallabaksleið milli Hólaskjóls …
Tjaldstæðið í Landmannalaugum. Búið er að loka Fjallabaksleið milli Hólaskjóls og Landmannalauga vegna vatnavaxta. Mbl.is/Brynjar Gauti

Lokað hefur verið fyrir umferð um Fjallabaksleið nyrðri milli Hólaskjóls og Landmannalauga vegna vatnavaxta. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar, sem segir Lakavegi einnig hafa verið lokað vegna vatnavaxta um óákveðinn tíma.

Áfram kemur til með að rigna sunnanlands og má því reikna má með talsverðum vatnavöxtum, m.a. í Þórsmörk og að Fjallabaki.

Þá bendir Vegagerðin einnig á að búast megi við staðbundnu sandfoki fram eftir degi norður af Vatnajökli, þar sem hvass og þurr vindur er á öræfunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert