Ölvaðir í umferðaróhappi

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögregla handtók þrjá karlmenn skammt frá Kaldárseli um kl. 8.20 í morgun, eftir að tilkynnt var um umferðaróhapp á staðnum. Þegar komið var á vettvang stóðu mennirnir þrír fyrir utan hina tjónuðu bifreið en þeir voru allir undir áhrifum áfengis.

Auk þess vaknaði grunur um að þeir væru undir áhrifum ávana- og fíkniefna en kannabisefni fannst á einum þeirra.

Mennirnir voru ómeiddir en bifreiðin óökuhæf.

Sem fyrr segir voru þremenningarnir handteknir og færðir á lögreglustöð til sýnatöku. Ekki fékkst úr því skorið hver þeirra hefði ekið bílnum. Þeir voru í kjölfarið vistaðir í fangaklefa, þar sem þeir munu dvelja þar til hægt verður að taka af þeim skýrslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert