Sjö stöðvaðir fyrir fíkniefnaakstur

mbl.is/Þórður

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi för sjö ökumanna, sem allir voru grunaðir um að aka bíl undir áhrifum fíkniefna.

Þar af voru þrír ökumenn stöðvaðir í austurborginni um kvöldmatarleytið sem allir voru grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Reyndust tveir bílanna aukinheldur vera án nauðsynlegra trygginga og þá var einn ökumannanna grunaður um sölu fíkniefna.

Tveir ökumannanna sem stöðvaðir voru síðar um kvöldið vegna gruns um fíkniefnaakstur reyndust auk þess vera á ferðinni án tilskilinna ökuréttinda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert