Ekið var á konu í Borgarnesi um fjögurleytið í gær. Atburðurinn átti sér stað á Borgarbrautinni og var konan, sem var erlendur ferðamaður, talsvert mikið slösuð á fæti eftir slysið, að sögn lögreglunnar á Vesturlandi.
Farið var með hana í sjúkrabíl á Landspítalann til aðhlynningar og segir lögregla að lögreglubílar hafi verið notaðir til að ryðja leið sjúkrabílsins suður, þar sem áverkarnir á fæti konunnar litu út fyrir að vera töluvert alvarlegir.