Gjaldheimta hafin við Seljalandsfoss

Frá Seljalandsfossi.
Frá Seljalandsfossi. mbl.is/Árni Sæberg

Gjaldtaka er hafin við Seljalandsfoss. Rukkað er á bílastæðinu við fossinn og er sólarhringsgjald fyrir hvern bíl 700 krónur en 3 þúsund fyrir rútur. Ísólf­ur Gylfi Pálma­son, sveit­ar­stjóri Rangárþings eystra, segir að gjöldunum sé ætlað að standa straum af kostnaði við uppbyggingu innviða við fossinn.

„Sveitarfélagið hefur frá árinu 2002 lagt um 30 milljónir í starfsemina við Seljalandsfoss án þess að fá tekjur á móti. Við höfum lengi beðið eftir að ríkisvaldið kæmi með einhverjar lausnir á þessu máli en ákváðum í samvinnu við landeigendafélag Seljalandsfoss að innheimta þjónustugjöld á þessu svæði,“ segir Ísólfur.

Ekki náðist í fulltrúa landeigendafélagsins við vinnslu fréttarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert