Báðir bílarnir eru taldir gjörónýtir eftir íkveikjuna. Sá rauði varð að sögn sjónarvotta fljótt alelda.
Tillaga Umhverfisstofnunar að starfsleyfi fyrir kísilverksmiðju PCC Bakka Silicon hf. gerir ráð fyrir að heimilt verði að framleiða allt 66.000 tonnum á ári af hrákísli og allt að 27.000 tonnum af kísildufti/kísilryki og 6.000 tonnum af málmleif og gjalli og 1.500 tonnum af forskiljuryki.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Þar segir einnig að tillagan ásamt fylgiskjölum og umsókn rekstraraðila mun verða aðgengileg hjá sveitarfélaginu Norðurþingi á tímabilinu 20. júlí til 15. september 2017.
Fram kemur að Skipulagsstofnun taldi í sínu áliti að áhrif framkvæmdarinnar yrðu talsvert neikvæð á loftgæði og á landslag og ásýnd svæðisins. Fyrirhugað er að halda opinn kynningarfund um tillöguna á auglýsingatíma. Hann verður haldinn í Norðurþingi. Frestur til að skila skriflegum athugasemdum til Umhverfisstofnunar er til 15. september næstkomandi.