Ólafsfjarðarvegur er lokaður vegna bílslyss en vegurinn er lokaður við Syðri-Haga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Tvær bifreiðar lentu saman en önnur bifreiðin var með hjólhýsi í eftirdragi. Í tilkynningu lögreglunnar segir að ekki sé talið að alvarleg slys hafi orðið á fólki en mikið brak sé úr ökutækjunum tveimur á veginum. Verður vegurinn því lokaður um tíma.
Uppfært 19.01:
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri er búið að opna Ólafsfjarðarveg að fullu.