Kýldur ítrekað í andlitið

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson
<span>Karlmaður var kýldur ítrekað í andlitið fyrir utan veitingastað í miðborginni snemma í morgun. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um málið laust fyrir klukkan 7 og eftir að lögreglumenn ræddu við manninn ákvað hann að fara sjálfur á slysadeild Landspítalans og leita sér þar aðhlynningar.</span>

Klukkan hálfátta í morgun var svo óskað eftir aðstoð lögreglunnar vegna karlmanns sem var að valda ónæði með því að hringja ítrekað dyrabjöllum í anddyri fjölbýlishúss í borginni. Maðurinn átti ekki heima í húsinu og var farinn af vettvangi er lögreglu bar að garði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert