Tveir 16 ára drengir voru fluttir á bráðadeildina í Fossvogi eftir fjórhjólaslys á gatnamótum Hagalækjar og Laxalækjar á Selfossi í gærkvöldi. Annar þeirra hefur verið útskrifaður en hinn liggur enn á spítala og er alvarlega slasaður.
Lögreglunni á Selfossi var tilkynnt um slysið um klukkan hálfellefu í gærkvöldi. Fjórhjólið hafði lent utan vegar og oltið á vegi sunnan við Selfoss. Rannsókn stendur enn yfir á tildrögum slyssins.