Töluverður hópur fólks var saman kominn á Ingólfstorgi í kvöld til að fylgjast með leik Íslands og Austurríkis á EM. Blái liturinn var áberandi hjá áhorfendum sem augljóslega voru komnir til að styðja sínar konur.
Eitthvað fækkaði þó í hópi áhorfenda í seinni hálfleik, en íslenska liðið fékk slæma útreið í þessum lokaleik sínum á EM og tapaði fyrir austurríska liðinu 3:0.