Hlýjast verður á Vesturlandi en svalast á norðausturhorni landsins í dag og verður hitinn á bilinu 8 til 23 stig. Léttskýjað vestantil en þokuloft við Faxaflóa í nótt og á þokunni að létta þegar líður á morguninn.
Norðaustan 5-13 m/s en 10-20 m/s SA-til í dag og verður hvassast við Öræfajökul. Skýjað og víða dálítil væta austantil. Tiltölulega hvasst verður við Öræfajökul og gætu vindhviður náð 25-30 m/s. Ökumönnum sem hyggjast ferðast á þessu svæði með eftirvagna er bent á að hafa það í huga. Þetta kemur fram í veðurspá Veðurstofu Íslands.