Landhelgisgæslu barst tilkynning um hval sem sást í Arnarfirði með veiðafæri áföst sporði. Varðskipið Þór er á leiðinni á staðinn til þess að athuga aðstæður.
Samkvæmt Landhelgisgæslunni verður athugað hvort mögulegt sé að losa veiðafærin af hvalnum en ekki er víst að það takist.
Uppfært kl. 23.59:
Búið er að losa hvalinn. Tókst það rétt fyrir klukkan 21 í kvöld.