Brauð & Co hagnaðist um 27 milljónir króna árið 2016, en fyrirtækið opnaði fyrsta bakarí sitt við Frakkastíg um vorið það ár. Tekjurnar námu 207 milljónum króna.
„Við hittum á eitthvað sem er spennandi,“ segir Ágúst Fannar Einþórsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Í vor opnaði Brauð & Co annað bakarí sitt, í húsnæði Glóar í Fákafeni.
Stefnt er að því að opna tvö önnur bakarí í bráð; annað í í Mathöllinni á Hlemmi og hitt við hlið Kaffihúss Vesturbæjar við Melhaga, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.