Hlauparar í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka streyma í mark í Lækjargötunni. Búið er að krýna sigurvegar í hálfu maraþoni en fyrsti karl í mark var Hlynur Andrésson og Elín Edda Sigurðardóttir var fyrsta kona.
Verðlaunahafar í hálfu maraþoni karla
Tími Hlyns er 3. besti tími sem Íslendingur hefur náð í hálfu maraþoni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka og persónulegt met hjá honum. Annar Íslendingur í mark var Geir Ómarsson og þriðji Þórólfur Ingi Þórsson.
Verðlaunahafar í hálfu maraþoni kvenna
Tími Elínar Eddu er 9.besti tími sem náðst hefur í hálfu maraþoni kvenna í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka og 2.besti tími íslenskra kvenna í hlaupinu. Einnig persónulegt met hjá Elínu Eddu. Önnur íslensk kona í mark var Rannveig Oddsdóttir og þriðja var Íris Anna Skúladóttir.
Í Menntaskólanum í Reykjavík er ennþá verið að taka á móti skráningum í skemmtiskokkið sem hefst klukkan 12:15. Skráning í Furðufatahlaup Georgs verður í tjaldi í suðurenda Hljómskálagarðsins frá kl.12:30.