Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um klukkan sjö í morgun um reyk í íbúð við Tryggvagötu í Reykjavík.
Þegar á staðinn kom var einn í íbúðinni en hann hafði ætlað að elda sér mat.
Húsráðandi var fluttur á sjúkrahús til skoðunar en hugsanlegt er að hann hafi orðið fyrir reykeitrun.