Efst á lista yfir efnahagslegan árangur

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ísland er í 1. sæti á lista yfir efnahagslegan árangur samkvæmt Positive Economy Index 2017, en niðurstöðurnar voru kynntar á ráðstefnunni Global Positive Forum í París í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. 

Staðallinn mælir árangur OECD-ríkja í efnahagsmálum með tilliti til ósérplægni efnahagsstefnu þeirra m.a. á mælikvarða jákvæðrar skuldastefnu, menntastefnu, endurnýjanlegrar orkunotkunar og samfélagslegs trausts.

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra ávarpaði af þessu tilefni ráðstefnuna og svaraði spurningum Jaques Attali, stofnanda vettvangsins. Meðal þess sem þeir ræddu var þáttur jafnréttis og félagslegrar samheldni í góðum árangri Íslands, sem og skynsamleg notkun auðlinda og fyrirhyggja í fjármálum með setningu laga um opinber fjármál, fyrirhugaða stofnun stöðugleikasjóðs og sterka stöðu lífeyriskerfisins.

Forsætisráðherra fundar með forseta Frakklands í kvöld og heldur til Finnlands í fyrramálið þar sem hann mun fylgjast með leikjum Íslands í fótbolta og körfubolta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert