Skjálftahrina hófst í Bárðarbungu klukkan 2:15 í nótt þegar skjálfti af stærð 4,1 mældist í norðanverðri öskjunni.
Allnokkrir skjálftar hafa mælst í hrinunni en sá stærsti var 4 að stærð klukkan 3:08. Enginn gosórói er sjáanlegur, samkvæmt upplýsingum frá jarðvársviði Veðurstofu Íslands.