Isavia áætlar að heildarfjöldi farþega sem fara um Keflavíkurflugvöll á þessu ári verði um 8,8 milljónir, sem yrði um 28 prósenta aukning frá því á síðasta ári. Isavia segir að skipting farþega sé í samræmi við spár. Um þriðjungur farþega flugvallarins er tengifarþegar en aðrir farþegar skiptast í komu- og brottfararfarþega.
Það sem af er þessu ári hafa tæpar sex milljónir farið um flugvöllinn en það er 32,4 prósentum meira en á sama tíma á síðasta ári, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgaði um 32,4 prósent fyrstu átta mánuði þessa árs frá sama tíma í fyrra en alls fór 5.954.761 farþegi um flugvöllinn frá byrjun janúar til loka ágúst, samkvæmt upplýsingum Isavia.
Annasamasti tími ársins á Keflavíkurflugvelli er sumarmánuðirnir, frá júní og út ágúst, og er engin undantekning frá því í ár að sögn Isavia. Í fyrsta sinn í sögunni fór yfir ein milljón farþega um flugvöllinn á einum mánuði og gerðist það í júlí og aftur í ágúst. Í júlímánuði fóru 1.099.963 farþegar um Keflavíkurflugvöll og 1.081.409 í ágúst. Stærsti dagur sumarsins var 6. ágúst þegar 40.147 farþegar fóru um flugvöllinn, en það eru 19% fleiri farþegar en á stærsta deginum í fyrrasumar.
Í vetur er gert ráð fyrir enn frekari fjölgun en Isavia segir að á tímabilinu nóvember til og með mars á næsta ári fjölgi sætum í boði um 830 þúsund. Heildarframboð flugsæta í vetur til og frá Íslandi verður því 3,8 milljónir og alls munu 15 flugfélög fljúga til og frá Keflavíkurflugvelli til 69 áfangastaða.