Áætlunarflug íslensku flugfélaganna til Flórída er nú komið í samt lag, en miklar truflanir urðu á flugi til Flórída vegna fellibyljarins Irmu. Töluvert vatnstjón varð til að mynda á Miami International-flugvellinum sem WOW air flýgur til.
Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air, sagði í samtali við mbl.is í gær að fregnir hefðu borist af því að búið væri að opna flugvöllinn og stefnt væri að því að hefja aftur flug þangað í dag.
Á vef Keflavíkurflugvallar má sjá að gert er ráð fyrir að flug Icelandair til Tampa á Flórída og flug WOW air til Miami í dag verði á áætlun.