Sveitarfélög vinni sig fljótt út úr áföllunum

Eldgosið í Eyjafjallajökli 2010 olli usla víða um lönd.
Eldgosið í Eyjafjallajökli 2010 olli usla víða um lönd. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Í vikunni voru haldnir á Suðurlandi fyrstu fundirnir með fulltrúum sveitarfélaga og íbúum á hverjum stað vegna nýrra almannavarnaáætlana fyrir landshlutann.

„Hugtökin eru skilgreind vítt og talsvert fleiri þættir en náttúruvá eru teknir inn í þessa vinnu,“ segir Víðir Reynisson í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag, en hann stýrir þessu verkefni á vegum lögreglunnar og sveitarfélaganna á Suðurlandi.

„Jarðskjálftar, eldgos, flóð og stórbrunar eru vissulega ofarlega á blaði og fyrsta hjálp þegar slíkir atburðir gerast. Nú horfum við til mun fleiri þátta, svo sem aðgerða ef veitu- og fjarskiptakerfi bresta, velferðarmálin koma inn í þetta og hvernig sveitarfélög geti unnið sig sem fyrst út úr áföllum. Sé ekki markvisst að málum staðið strax í byrjun geta eftirköstin varað í mörg ár.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert