Ofanflóðagarðar vígðir í Neskaupstað

Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, Eydís Ásbjörnsdóttir bæjarfulltrúi, Björt …
Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, Eydís Ásbjörnsdóttir bæjarfulltrúi, Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðarbyggðar, Jens Garðar Helgason bæjarfulltrúi og Sigurður Rúnar Ragnarsson sóknarprestur. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið

Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, opnaði formlega ný ofanflóðamannvirki á Tröllagiljasvæðinu í Neskaupstað við hátíðlega athöfn í vikunni. Framkvæmdirnar voru unnar á árunum 2008 til 2017 en um er að ræða 660 m langan þvergarð, um 420 m langan leiðigarð og 24 snjóflóðavarnarkeilur. Markmið með byggingu snjóflóðamannvirkjanna er að taka við snjóflóðum, stöðva flóðin og beina hluta þeirra í sjó.

Varnargarðarnir eru hluti af bæjarlandslaginu í Neskaupstað en við hönnun þeirra og byggingu var lögð áhersla á útlit mannvirkisins, uppgræðslu og gerð göngustíga þannig að framkvæmdirnar féllu sem best að umhverfinu og stuðluðu um leið að bættri aðstöðu til útivistar. Þannig var hluti vígsluathafnarinnar Hágarðshlaup Knattspyrnudeildar Þróttar sem ráðherra ræsti, þar sem hlaupið var á nýjum stígum sem gerðir voru vegna framkvæmdanna við mannvirkin. 

Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, setti athöfnina og bauð gesti velkomna en Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, flutti ávarp og Írean Fönn Clemmensen flutti tvö ljóð. Að því loknu ávarpaði ráðherra samkomuna og sr. Sigurður Rúnar Ragnarsson sóknarprestur blessaði mannvirkin í framhaldinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert