Borgarísjaki sést frá veðurstöðinni í Litlu-Ávík á Ströndum. Jakinn er um 18 kílómetra norð-norðaustur af Nestanga við Litlu-Ávík og um 8 kílómetra austur af Sæluskeri.
Fram kemur á fréttavef Jóns Guðbjarnar Guðjónssonar, Litlihjalli.it.is, að 21. september hafi einnig sést borgarísjaki frá veðurstöðinni.
Hér má nálgast tilkynningar á vef Veðurstofunnar um ísjaka að undanförnu.