Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í dag fund með Antoni Vasiliev, sendiherra Rússlands, til að ræða undirbúning heimsmeistaramóts FIFA í knattspyrnu sem fer fram næsta sumar. Ísland tryggði sér í gær þátttöku á mótinu og er búist við að fjöldi Íslendinga muni leggja leið sína til Rússlands til að styðja við bakið á liðinu.
„Það er ljóst að þetta er risaverkefni en það greinilegt að Rússar leggja mikið upp úr því að undirbúa keppnina vel og búa að mikilli reynslu í þeim efnum. Okkur hefur verið lofað allri aðstoð sem við gætum þurft á að halda og við munum einnig senda starfsfólk aukalega til Rússlands til að styðja við bakið á sendiráði okkar, því ljóst er að mikið mun mæða á því í aðdraganda keppninnar og meðan á henni stendur,“ segir Guðlaugur Þór.
Keppt verður á tólf leikvöngum í ellefu rússneskum borgum, allt frá Kaliningrad við Eystrasalt, til Ekaterinburg við Úralfjöll í austri en svæðið spannar fjögur tímabelti. Ljóst verður hvar Ísland mun leika 1. desember þegar dregið verður í riðla.
Á fundinum kom fram að í kringum keppnina munu rússnesk stjórnvöld bjóða stuðningsmönnum sem ferðast til landsins upp á sérstakt stuðningsmannaskírteini, svokallað „Fan ID“. Það heimilar viðkomandi stuðningsmanni að ferðast til Rússlands án áritunar, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, og einnig innan þess með sérstökum lestum á milli borga þar sem leikirnir fara fram.
Allir sem ætla að sækja leiki í Rússlandi ættu að skrá sig á þar til gerða heimasíðu, www.fan-id.ru en einnig er smáforrit, „Welcome 2018“, fyrir þá sem ætla að ferðast til Rússlands vegna leikjanna. Stuðningsfólk á leið til Rússlands ætti að skoða áðurnefnda möguleika gaumgæfilega og leita til sendiráðs Rússlands ef frekari spurningar vakna.
Ekki er beint áætlunarflug milli landanna en Icelandair og Aeroflot eru í samstarfi um flug með sameiginleg flugnúmer og fjölmargir aðrir möguleikar eru með tengiflugi í gegnum Norður-Evrópu, þ.m.t. með lággjaldaflugfélögum.
Utanríkisráðuneytið hefur farið fyrir viðræðum síðustu misseri við rússnesk stjórnvöld um að endurskoða loftferðasamning ríkjanna til að greiða betur fyrir mögulegum flugsamgöngum milli landanna.