Hvalfjarðargöng verða lokuð fyrir umferð í þrjár nætur í næstu viku vegna viðhalds og hreingerningar. Kemur þetta fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Þar segir að það sé árlegur viðburður í rekstri ganganna að loka þeim í nokkrar nætur að vori og hausti af þessu tilefni.
Lokunin er því hefðbundin en beðist er velvirðingar á óþægindum sem hún kann að valda.